3.10.2011

Stefnuræða forsætisráðherra 3. október 2011, röð flokka og ræðumenn

Umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra verður útvarpað og sjónvarpað mánudaginn 3. október 2011, kl. 19.50. Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir. Forsætisráðherra hefur 20 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en þingflokkur forsætisráðherra hafa 12 mínútur í fyrstu umferð, í annarri umferð hafa þingflokkarnir sex mínútur en í þeirri þriðju fimm mínútur hver þingflokkur.

Röð flokkanna er í öllum umferðum þessi:
Samfylkingin,
Sjálfstæðisflokkur,
Vinstri hreyfingin - grænt framboð,
Framsóknarflokkur og
Hreyfingin.

Ræðumenn Samfylkingarinnar verða í fyrstu umferð Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra, Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra í annarri og Magnús Orri Schram, 7. þingmaður Suðvesturkjördæmis, í þriðju umferð.

Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokk verða Bjarni Benediktsson, 2. þingmaður Suðvesturkjördæmis, í fyrstu umferð, Ólöf Nordal, 2. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri umferð og Birgir Ármannsson, 11. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, í þriðju umferð.

Ræðumenn fyrir Vinstri hreyfinguna - grænt framboð verða Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra í fyrstu umferð, í annarri Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra og í þriðju umferð Þráinn Bertelsson, 9. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður.

Fyrir Framsóknarflokk tala Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 8. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, í fyrstu umferð, í annarri Vigdís Hauksdóttir, 8. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, og í þriðju umferð Ásmundur Einar Daðason, 9. þingmaður Norðvesturkjördæmis.

Fyrir Hreyfinguna tala í fyrstu umferð Birgitta Jónsdóttir, 9. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri Þór Saari, 9. þingmaður Suðvesturkjördæmis, og í þriðju umferð Margrét Tryggvadóttir, 10. þingmaður Suðurkjördæmis.

Síðust í fyrstu umferð tala þingmenn utan flokka:
Lilja Mósesdóttir, 6. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, og
Guðmundur Steingrímsson, 8. þingmaður Norðvesturkjördæmis.