4.10.2010

Stefnuræða forsætisráðherra 4. október 2010 - röð flokka og ræðumenn

Umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra verður útvarpað og sjónvarpað mánudaginn 4. október 2010, kl. 19.50. Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir. Forsætisráðherra hefur 20 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en þingflokkur forsætisráðherra hafa 12 mínútur í fyrstu umferð, í annarri umferð hafa þingflokkarnir sex mínútur en í þeirri þriðju fimm mínútur hver þingflokkur.

Röð flokkanna er í öllum umferðum þessi:
Samfylkingin,
Sjálfstæðisflokkur,
Vinstri hreyfingin - grænt framboð,
Framsóknarflokkur og
Hreyfingin.

Ræðumenn Samfylkingarinnar verða í fyrstu umferð Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra, Guðbjartur Hannesson, félags- og tryggingamálaráðherra og heilbrigðisráðherra, í annarri og Valgerður Bjarnadóttir, 6. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, í þriðju umferð.

Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokk verða Bjarni Benediktsson, 2. þingmaður Suðvesturkjördæmis, í fyrstu umferð, Ólöf Nordal, 2. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri umferð og Ragnheiður E. Árnadóttir, 2. þingmaður Suðurkjördæmis, í þriðju umferð.

Ræðumenn fyrir Vinstri hreyfinguna - grænt framboð verða Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra í fyrstu umferð, í annarri Jórunn Einarsdóttir, 4. þingmaður Suðurkjördæmis, og í þriðju umferð Ólafur Þór Gunnarsson, 3. þingmaður Suðvesturkjördæmis.

Fyrir Framsóknarflokk tala Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 8. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, í fyrstu umferð, í annarri Höskuldur Þórhallsson, 6. þingmaður Norðausturkjördæmis, og í þriðju umferð Sigurður Ingi Jóhannsson, 3. þingmaður Suðurkjördæmis.

Fyrir Hreyfinguna tala í fyrstu umferð Þór Saari, 9. þingmaður Suðvesturkjördæmis, í annarri Baldvin Jónsson, 9. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, og í þriðju umferð Margrét Tryggvadóttir, 10. þingmaður Suðurkjördæmis.