29.9.2009

Setning Alþingis fimmtudaginn 1. október 2009

Þingsetningarathöfnin hefst kl. 13.30 með guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Forseti Íslands, ráðherrar og alþingismenn ganga fylktu liði til kirkjunnar úr Alþingishúsinu kl. 13.25. Jón A. Baldvinsson, vígslubiskup í Hólabiskupsdæmi, predikar og séra Hjálmar Jónsson, sóknarprestur í Dómkirkjunni, þjónar fyrir altari ásamt biskupi Íslands, herra Karli Sigurbjörnssyni. Organisti Dómkirkjunnar, Marteinn H. Friðriksson, leikur á orgel og kammerkór Dómkirkjunnar syngur við athöfnina.

Að guðsþjónustu lokinni ganga forseti Íslands, biskupinn yfir Íslandi, ráðherrar, alþingismenn og aðrir gestir til þinghússins.

Forseti Íslands setur Alþingi, 138. löggjafarþing, og að því loknu flytur forseti Alþingis, Ásta R. Jóhannesdóttir, ávarp. Þingsetningarfundi verður síðan frestað til kl. 4 síðdegis.

Þegar þingsetningarfundi verður fram haldið kl. 4 síðdegis verður hlutað um sæti þingmanna. Fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2010 verður þá útbýtt.

Yfirlit helstu atriða þingsetningar:

Fimmtudagur 1. október:
Kl. 13.25 Þingmenn ganga til kirkju.
Kl. 13.30 Guðsþjónusta.
Kl. 14.05 Þingmenn ganga úr kirkju í Alþingishúsið.
Kl. 14.10 Forseti Íslands setur þingið og flytur ávarp.
Kl. 14.30 Forseti Alþingis flytur ávarp.
Kl. 14.45 Hlé á þingsetningarfundi fram til kl. 16.

Framhald þingsetningarfundar kl. 4 síðdegis:
Kl. 16.00 Tilkynningar, útbýting fjárlagafrumvarps 2010, hlutað um sæti þingmanna.
Kl. 16.15 Fundi slitið.

Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana verða á mánudagskvöld 5. október, kl. 19.50.