19.1.2009

Forsætisnefnd Alþingis skipar vinnuhóp til að rannsaka starfshætti og siðferði í tengslum við fall íslensku bankanna

Forsætisnefnd Alþingis gekk þann 14. janúar síðastliðinn frá skipan þriggja manna í vinnuhóp sem ætlað er að leggja mat á hvort skýringar á falli íslensku bankanna og tengdum efnahagsáföllum megi að einhverju leyti finna í starfsháttum og siðferði.

Í vinnuhópinn voru skipuð Vilhjálmur Árnason, heimspekingur og prófessor við Háskóla Íslands, Salvör Nordal heimspekingur og forstöðumaður Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands, og Kristín Ástgeirsdóttir, sagnfræðingur og framkvæmdastýra Jafnréttisstofu.

Vinnuhópnum er ætlað að vinna að rannsókninni í samráði við rannsóknarnefnd Alþingis, en bæði rannsóknarnefndin og vinnuhópurinn starfa á grundvelli laga nr. 142/2008, um rannsókn á aðdraganda og orsökum falls íslensku bankanna og tengdra atburða. Niðurstöðum vinnuhópsins er ætlað að verða liður í þeirri skýrslu sem rannsóknarnefndin skilar.