27.5.2003

Stefnuræða forsætisráðherra - röð flokka og ræðumenn

Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir. Forsætisráðherra hefur 20 mín. til framsögu en aðrir þingflokkar en flokkur forsætisráðherra 12 mín. í fyrstu umferð, í annarri umferð hafa þingflokkarnir 6 mín. og í hinni þriðju 5 mín.

Röð flokkanna í öllum umferðum er þessi:

Sjálfstæðisflokkur,
Samfylkingin,
Framsóknarflokkur,
Vinstri hreyfingin - grænt framboð og
Frjálslyndi flokkurinn.

Ræðumenn verða fyrir Sjálfstæðisflokk Davíð Oddsson forsætisráðherra í fyrstu umferð, Drífa Hjartardóttir, 5. þm. Suðurkjördæmis, í annarri umferð og Einar K. Guðfinnsson, 4. þm. Norðvesturkjördæmis, í þriðju umferð.

Ræðumenn Samfylkingarinnar verða í fyrstu umferð Össur Skarphéðinsson, 1. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, 5. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í annarri umferð, og Katrín Júlíusdóttir, 9. þm. Suðvesturkjördæmis, í þriðju umferð.

Fyrir Framsóknarflokk tala Árni Magnússon félagsmálaráðherra í fyrstu umferð, í annarri umferð Dagný Jónsdóttir, 8. þm. Norðausturkjördæmis, og í þriðju umferð Birkir J. Jónsson, 9. þm. norðausturkjördæmis.

Ræðumenn fyrir Vinstri hreyfinguna - grænt framboð verða Steingrímur J. Sigfússon, 5. þm. Norðausturkjördæmis, í fyrstu umferð, í annarri umferð Kolbrún Halldórsdóttir, 8. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, og í þriðju umferð Jón Bjarnason, 8. þm. Norðvesturkjördæmis.

Fyrir Frjálslynda flokkinn tala Magnús Þór Hafsteinsson, 9. þm. Suðurkjördæmis, og Sigurjón Þórðarson, 10. þm. Norðvesturkjördæmis, í fyrstu umferð, í annarri umferð Gunnar Örlygsson, 10. þm. Suðvesturkjördæmis, og Guðjón A. Kristjánsson, 5. þm. Norðvesturkjördæmis, í þriðju umferð.