28.9.2002

Setning Alþingis 1. október 2002

Þingsetningarathöfnin hefst kl. 13.30 með guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Forseti Íslands, ráðherrar og alþingismenn ganga fylktu liði til kirkjunnar úr Alþingishúsinu kl. 13.25. Séra Sigurður Sigurðarson, vígslubiskup í Skálholti, predikar og þjónar fyrir altari ásamt biskupi Íslands, herra Karli Sigurbjörnssyni. Organisti Dómkirkjunnar, Marteinn H. Friðriksson, leikur á orgel og kammerkór Dómkirkjunnar syngur við athöfnina. Að guðsþjónustu lokinni ganga forseti Íslands, biskupinn yfir Íslandi, þingmenn og aðrir gestir til þinghússins.

Forseti Íslands setur þingið og að því loknu tekur starfsaldursforseti þingsins, Páll Pétursson félagsmálaráðherra, við fundarstjórn og stjórnar kjöri forseta Alþingis sem flytur ávarp. Þingsetningarfundi verður síðan frestað til kl. 16 en á meðan halda þingflokkar fundi.

Þegar þingsetningarfundi er fram haldið verða kosnir varaforsetar og kosið verður í fastanefndir Alþingis og til Íslandsdeilda þeirra alþjóðasamtaka sem Alþingi er aðili að. Að síðustu verður hlutað um sæti þingmanna, annarra en ráðherra og forseta Alþingis. Fjárlagafrumvarpi verður útbýtt kl. 16 (við framhald þingsetningarfundar).

Yfirlit helstu atriða þingsetningar, áætlaðar tímasetningar:

Kl. 13.25 Þingmenn ganga til kirkju.

Kl. 13.30 Guðsþjónusta.

Kl. 14.05 Þingmenn ganga úr kirkju í Alþingishúsið.

Kl. 14.10 Forseti Íslands setur þingið.

Kl. 14.15 Aldursforseti tekur við fundarstjórn og stjórnar kjöri forseta Alþingis.

Kl. 14.20 Forseti Alþingis tekur við kjöri og flytur ávarp.

Kl. 14.25 Hlé - þingflokksfundir.

Kl. 16.00 Útbýting þingskjala (m.a. fjárlagafrumvarps), tilkynningar o.fl.

Kosning fjögurra varaforseta.

Nefndakjör (fastanefndir og alþjóðanefndir).

Hlutað um sæti þingmanna.

Fundi slitið.