1.10.2004

Setning Alþingis 1. október 2004

Þingsetningarathöfnin hefst kl. 13.30 með guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Forseti Íslands, ráðherrar og alþingismenn ganga fylktu liði til kirkjunnar úr Alþingishúsinu kl. 13.25. Séra Pálmi Matthíasson, sóknarprestur í Bústaðaprestakalli, predikar og þjónar fyrir altari ásamt biskupi Íslands, herra Karli Sigurbjörnssyni. Organisti Dómkirkjunnar, Marteinn H. Friðriksson, leikur á orgel og kammerkór Dómkirkjunnar syngur við athöfnina.

Að guðsþjónustu lokinni ganga forseti Íslands, biskupinn yfir Íslandi, ráðherrar, alþingismenn og aðrir gestir til þinghússins.

Forseti Íslands setur Alþingi, 131. löggjafarþing, og að því loknu tekur starfsaldursforseti, Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra, við fundarstjórn, flytur minningarorð og stjórnar kjöri forseta Alþingis. Þingsetningarfundi verður síðan frestað til kl. 16 en á meðan halda þingflokkar fundi.

Þegar þingsetningarfundi er fram haldið verða kosnir varaforsetar og kosið verður í fastanefndir Alþingis og til Íslandsdeilda þeirra alþjóðasamtaka sem Alþingi er aðili að. Að síðustu verður hlutað um sæti þingmanna. Fjárlagafrumvarpi verður útbýtt kl. 16 (við framhald þingsetningarfundar).

Yfirlit helstu atriða þingsetningar, áætlaðar tímasetningar:

Kl. 13.25 Þingmenn ganga til kirkju.
Kl. 13.30 Guðsþjónusta.
Kl. 14.05 Þingmenn ganga úr kirkju í Alþingishúsið.
Kl. 14.10 Forseti Íslands setur þingið.
Kl. 14.20 Aldursforseti tekur við fundarstjórn, minnist fyrrv. alþingismanna er látist hafa og stjórnar síðan kjöri forseta Alþingis.
Kl. 14.35 Forseti Alþingis tekur við kjöri og flytur ávarp.
Kl. 14.40 Hlé, þingflokksfundir.
Kl. 16.00 Útbýting þingskjala (m.a. fjárlagafrumvarps), tilkynningar o.fl.
Kosning sex varaforseta.
Nefndakjör (fastanefndir og alþjóðanefndir).
Hlutað um sæti þingmanna.
Fundi slitið (um kl. 16.30).

Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana verða á mánudagskvöld, 4. okt., kl. 19.50.

Fjármálaráðherra mælir fyrir frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2005 á þriðjudag, 5. okt.