30.9.2013

Starfsáætlun 143. löggjafarþings 2013-2014

Starfsáætlun 143. löggjafarþings 2013-2014 hefur verið birt á vef Alþingis.

Í henni er meðal annars birt áætlun um fjölda þingfundadaga, daga sem eingöngu eru ætlaðir til nefndafunda og kjördæmadaga.
 

1. Þingsetning fer fram 1. október.

2. Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana verða að kvöldi miðviku­dagsins 2. október.

3. 1. umræða um fjárlagafrumvarp 2014 fer fram fimmtudaginn 3. október og föstudag­inn 4. október Stefnt er að 2. umræðu þriðjudaginn 3. desember og 3. umræðu þriðjudaginn 10. desember.

4. Skýrsla utanríkisráðherra um utanríkismál verður rædd 20. mars.

5. Laugardagurinn 30. nóvember er síðasti dagur til að leggja fram ný þingmál sem eiga að koma á dagskrá fyrir jólahlé og mánudagurinn 31. mars er síðasti dagur til að leggja fram ný þingmál fyrir sumarhlé.

6. Nefndastörfum lýkur 8. maí.

7. Almennar stjórnmálaumræður (eldhúsdagur) verða miðvikudaginn 14. maí.

8. Kjördæmadagar eru 21.–24. október 2013 og 3.–6. febrúar 2014.