27.5.2008

Almennar stjórnmálaumræður (eldhúsdagsumræður) kl. 7.50 síðdegis 27. maí 2008

Almennar stjórnmálaumræður (eldhúsdagsumræður) kl. 7.50 síðdegis 27. maí 2008

Umræðurnar verða sendar út í útvarpi og sjónvarpi. Umræðurnar fara þannig fram að hver þingflokkur fær 22 mínútur til umráða sem skiptast í þrjár umferðir, 10 mínútur í fyrstu umferð, 6 mínútur í annarri og 6 mínútur í síðustu umferð.

Röð flokkanna verður þessi í öllum umferðum:

Vinstri hreyfingin – grænt framboð,
Sjálfstæðisflokkur,
Framsóknarflokkur,
Samfylkingin og
Frjálslyndi flokkurinn.

Ræðumenn flokkanna verða:

Fyrir Vinstri hreyfinguna – grænt framboð tala, í fyrstu umferð Ögmundur Jónasson, 6. þm. Suðvesturkjördæmis, í annarri umferð Árni Þór Sigurðsson, 9. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, en Þuríður Backman, 8. þm. Norðausturkjördæmis, í þriðju umferð.

Ræðumenn Sjálfstæðisflokks eru: Í fyrstu umferð Geir H. Haarde forsætisráðherra, í annarri Guðfinna S. Bjarnadóttir, 3. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, en í þeirri þriðju Kristján Þór Júlíusson, 1. þm. Norðausturkjördæmis.

Fyrir Framsóknarflokk tala Guðni Ágústsson, 3. þm. Suðurkjördæmis, í fyrstu umferð, Siv Friðleifsdóttir, 10. þm. Suðvesturkjördæmis, í annarri, en í þriðju umferð Höskuldur Þórhallsson, 10. þm. Norðausturkjördæmis.

Fyrir Samfylkinguna tala í fyrstu umferð Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra, í annarri umferð Steinunn Valdís Óskarsdóttir, 10. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, en í þriðju umferð Einar Már Sigurðarson, 7. þm. Norðausturkjördæmis.

Fyrir Frjálslynda flokkinn talar í fyrstu umferð Guðjón A. Kristjánsson 6. þm. Norðvesturkjördæmis, en Jón Magnússon, 10. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri og Grétar Mar Jónsson, 10. þm. Suðurkjördæmis, í þriðju umferð.