9.4.2013

Upplýsingar um alþingiskosningar 2013 á kosning.is

Kosningar til Alþingis voru haldnar laugardaginn 27. apríl 2013. Á upplýsingavef innanríkisráðuneytisins, www.kosning.is, er að finna fróðleik og hagnýtar upplýsingar um atriði sem lúta að alþingiskosningum. Á vef landskjörstjórnar, www.landskjor.is, eru birtar fréttir af starfi landskjörstjórnar og greinar og annað efni sem tengist kosningamálum og kosningafræði.

Á vef Alþingis er safn tengla í vefi sem tengjast alþingiskosningunum 2013.