7.9.2012

Setning Alþingis þriðjudaginn 11. september 2012

Þingsetningarathöfnin hefst kl. 13.30 með guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Forseti Íslands, biskup Íslands, forseti Alþingis, ráðherrar og alþingismenn ganga fylktu liði til kirkjunnar úr Alþingishúsinu. Séra Kristján Valur Ingólfsson vígslubiskup prédikar og séra Hjálmar Jónsson, sóknarprestur í Dómkirkjunni, þjónar fyrir altari ásamt biskupi Íslands, Agnesi M. Sigurðardóttur. Organisti Dómkirkjunnar, Kári Þormar, leikur á orgel og kammerkór Dómkirkjunnar syngur við athöfnina.

Að guðsþjónustu lokinni ganga forseti Íslands, biskup Íslands, forseti Alþingis, ráðherrar, alþingismenn og aðrir gestir til þinghússins.Forseti Íslands setur Alþingi, 141. löggjafarþing, og að því loknu flytur forseti Alþingis, Ásta R. Jóhannesdóttir, ávarp. Þingsetningarfundi verður síðan frestað til kl. 16.00.

Þegar þingsetningarfundi verður fram haldið verður hlutað um sæti þingmanna. Fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2013 verður þá útbýtt.

Yfirlit helstu atriða þingsetningar:

Kl. 13.25 Þingmenn ganga til kirkju.
Kl. 13.30 Guðsþjónusta.
Kl. 14.05 Þingmenn ganga úr kirkju í Alþingishúsið.
Kl. 14.11 Forseti Íslands setur þingið og flytur ávarp.
Strengjakvartett flytur Hver á sér fegra föðurland.
Kl. 14.30 Forseti Alþingis flytur minningarorð.
Strengjakvartett flytur Ísland ögrum skorið.
Strengjakvartettinn skipa Auður Hafsteinsdóttir og Helga Steinunn Torfadóttir, fiðlur, Matthías Stefánsson, lágfiðla og Bryndís Halla Gylfadóttir, selló.
Kl. 14.37 Forseti Alþingis flytur ávarp.
Kl. 14.45 Hlé á þingsetningarfundi fram til kl. 16.00.

Framhald þingsetningarfundar:

Kl. 16.00 Tilkynningar, útbýting fjárlagafrumvarps 2013 og hlutað um sæti þingmanna.
Kl. 16.15 Fundi slitið.

Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana verða á miðvikudagskvöldið 12. september, kl. 19.50.

Fjármálaráðherra mælir fyrir frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2013 þann 13. september kl. 10.30.