18.4.2018

Þingfundur á Þingvöllum 18. júlí 2018

Ísland varð frjálst og fullvalda ríki með gildistöku sambandslaganna 1. desember 1918. Segja má að þetta hafi verið einn merkasti áfanginn í sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar sem hafði þá staðið í nær eina öld. 

Alþingi Íslendinga samþykkti haustið 2016 þingsályktun um hvernig fagna bæri aldarafmæli sjálfstæðis og fullveldis Íslands þar sem lögð er áhersla á menningu og tungu sem og þátttöku landsmanna. Í samræmi við það er 100 ára fullveldisafmæli nú fagnað um land allt með fjölbreyttri dagskrá

Tveir hápunktar verða á afmælisárinu: Fullveldisdagurinn, 1. desember, verður haldinn hátíðlegur um allt land í samstarfi við háskóla, sveitarfélög og fólkið í landinu. Einnig mun ríkisstjórn Íslands standa fyrir dagskrá í tilefni dagsins. Þann 18. júlí verður haldinn hátíðarfundur Alþingis á Þingvöllum en þann dag var samningum um fullveldi Íslands lokið með undirritun sambandslaganna sem tóku gildi 1. desember 1918. 

Þingfundurinn er hugsaður eins og fundir á Þingvöllum hafa verið á hátíðar- og minningarstundum í sögu þjóðarinnar. Fundurinn verður undir berum himni á sérstaklega byggðum þingpalli. Þingfundurinn er fyrirframskipulagður þar sem ætlunin er að samþykkja ályktun sem full samstaða er um. 

Stefnt er að því að hafa alla umgjörð þingfundarins þennan dag hóflega og látlausa enda ekki um að ræða þjóðhátíð í hefðbundnum skilningi. Bein sjónvarpsútsending verður frá þingfundinum og öllum landsmönnum gefst þannig kostur á að fylgjast með þótt allir séu að sjálfsögðu velkomnir á staðinn. 

Við undirbúning þingfundarins í sumar hefur skrifstofa Alþingis átt mjög gott samstarf við fjölmarga aðila, eins og Framkvæmdasýslu ríkisins, embætti ríkislögreglustjóra, Vegagerðina, þjóðgarðsvörðinn á Þingvöllum, Þingvallanefnd og RÚV.Merki 100 ára fullveldisafmælis