8.7.2015

Tölfræðilegar upplýsingar um 144. löggjafarþing

Þingfundum 144. löggjafarþings var frestað 3. júlí til 8. september 2015 er 145. löggjafarþing hefst. Þingið var að störfum frá 9. september 2014 til 16. desember 2014 og frá 20. janúar til 3. júlí.

Þingfundir voru samtals 147 og stóðu alls í tæpar 838 klst. Meðallengd þingfunda var 5 klst. og 41 mín. Lengsti þingfundurinn stóð í 15 klst. og 12 mín.  og lengsta umræðan var um frumvarp til fjárlaga sem stóð í 68 klst. Þingfundadagar voru alls 126.

Af 207 frumvörpum urðu alls 105 að lögum, 102 voru óútrædd. Af 115 þingsályktunartillögum voru 22 samþykktar en  93 tillögur óútræddar. Sjá nánari sundurliðun og stöðu mála við lok þings.

23 skriflegar skýrslur voru lagðar fram, þar af ein skv. beiðni, en 9 beiðnir um skýrslur höfðu borist er þingi var frestað.

Þrjú álit nefnda um skýrslur bárust.

Fyrirspurnir á þingskjölum voru samtals 466.  Munnlegar fyrirspurnir  voru 101 og var 91 svarað, tvær voru kallaðar aftur og tvær biðu svars í lok þings en sex voru felldar niður vegna ráðherraskipta.

365 skriflegar fyrirspurnir voru lagðar fram og var 319 þeirra svarað og 37 bíða svars er þingi var frestað en níu voru felldar niður vegna ráðherraskipta.

Þingmál til meðferðar í þinginu voru 822 og tala prentaðra þingskjala var 1630. 

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra voru 294, þannig að alls svöruðu ráðherrar 704 fyrirspurnum frá þingmönnum ýmist á þingskjölum eða óundirbúið. Sérstakar umræður voru 43 og munnlegar skýrslur ráðherra voru þrjár. 

Fastanefndir þingsins höfðu haldið um 600 fundi þegar þingfundum var frestað.