Tilkynningar

Laust starf í mötuneyti

15.10.2015

Starfsmaður í mötuneyti

Skrifstofa Alþingis auglýsir eftir starfsmanni í mötuneyti í fullt starf.

Helstu verkefni og ábyrgð
Matseld, bakstur og annar matarundirbúningur.
Undirbúningur og vinna við móttökur og fundi.
Matseðlagerð.
Uppþvottur og þrif.
Önnur verkefni í mötuneyti.

Hæfnikröfur
Menntun á sviði matartækni eða sambærileg menntun.
Marktæk reynsla af vinnu í mötuneyti eða í sambærilegu starfi.
Góð kunnátta í matargerð og bakstri.
Lipurð í mannlegum samskiptum og góð þjónustulund.
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
Snyrtimennska og stundvísi.
Ástríða fyrir matargerð og vilji til að bæta við þekkingu.

Frekari upplýsingar um starfið
Mötuneytið er í Skála Alþingis við Kirkjustræti. Þar borða að jafnaði 100-140 manns í hádegi. Einnig er útbúinn matur fyrir kvöldfundi Alþingis, aðra fundi og móttökur. Alþingi býður uppá fjölbreyttan og hollan mat sem eldaður er frá grunni og leggur áherslu á ferskt hráefni. Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Alþingi er reyklaus vinnustaður.

Um laun starfsmanna Alþingis gildir kjarasamningur milli forseta Alþingis og Félags starfsmanna Alþingis. Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um stöðuna. Umsóknir gilda í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Gildi skrifstofu Alþingis eru:
Þjónustulund, fagmennska og samvinna.

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 02.11.2015

Nánari upplýsingar veitir
Ólöf Þórarinsdóttir - olof@althingi.is - 563 0500

Smelltu hér til að sækja um starfið.