Fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis 23. febrúar verður opinn fréttamönnum undir 2. dagskrárlið
Fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis 23. febrúar kl. 8.30 verður opinn fréttamönnum meðan 2. dagskrárliður, afturköllun ákæru á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, verður ræddur.
Gestir á fundinum verða Þórhallur Vilhjálmsson aðallögfræðingur Alþingis og Páll Þórhallsson frá forsætisráðuneytinu.
Dagskrá fundarins.
Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fjölmiðlamönnum meðan húsrúm leyfir.
Fundurinn er opinn fréttamönnum en er hvorki tekinn upp né sent beint út frá honum á vegum Alþingis.
Fundurinn verður haldinn með stoð í nýju ákvæði 2. mgr. 19. gr. laga um þingsköp Alþingis.