Tilkynningar

Opinn fundur í atvinnuveganefnd með iðnaðarráðherra 10. nóvember - bein útsending

8.11.2011

Opinn fundur verður í atvinnuveganefnd með iðnaðarráðherra 10. nóvember. Fundurinn hefst kl. 8.45 og er áætlað að hann standi til kl. 09.50. Rætt verður um þingmál iðnaðarráðherra á yfirstandandi þingi, 140. löggjafarþingi, sbr. 4. mgr. 18. gr. þingskapa.

Gestir fundarins verða Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra og Kristján Skarphéðinsson ráðuneytisstjóri.

Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.

Bein útsending verður frá fundinum í ríkissjónvarpinu, á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone.