Tilkynningar

Opinn fundur í atvinnuveganefnd með sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra 3. nóvember - bein útsending

2.11.2011

Opinn fundur verður haldinn í atvinnuveganefnd Alþingis fimmtudaginn 3. nóvember 2011 kl. 8.45. Gestur fundarins verður Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Rætt verður um þau mál sem ráðherra hyggst leggja fram á yfirstandandi þingi.

Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.

Bein útsending verður frá fundinum í ríkissjónvarpinu, á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone.