Tilkynningar

Frá utanríkismálanefnd Alþingis

4.6.2009

Utanríkismálanefnd Alþingis gefur þeim sem þess óska kost á að senda skriflegar athugasemdir við þingsályktunartillögur er varða umsókn um aðild að Evrópusambandinu sem nefndin hefur nú til umfjöllunar.

Nefndin veitir viðtöku umsögnum og erindum frá félögum, samtökum og einstaklingum á netfangið esb@althingi.is. Vinsamlegast athugið að undirritað frumrit umsagnar óskast jafnframt sent nefndinni. Umsagnir og erindi þurfa að berast nefndinni fyrir 15. júní nk. Ekki er hægt að tryggja úrvinnslu umsagna sem berast eftir þann tíma.

Tillögurnar er að finna á vefslóðunum:

http://www.althingi.is/altext/137/s/0038.html.
og

http://www.althingi.is/altext/137/s/0054.html..

Utanríkismálanefnd Alþingis

Póstfang:
Skrifstofa Alþingis – nefndasvið
Austurstræti 8-10
150 Reykjavík