Tilkynningar

Opinn fundur samgöngunefndar með samgönguráðherra um framkvæmd samgönguáætlunar 3. apríl 2009

2.4.2009

Samgöngunefnd Alþingis heldur opinn fund kl. 9.30 föstudaginn 3. apríl. Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis að Austurstræti 8-10 og verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.

Á fundinum verður rætt um framkvæmd samgönguáætlunar, áform um útboð og fjármögnun þeirra og tillögur ráðuneytis um frestun framkvæmda vegna lækkunar framlaga á fjárlögum.

Gestir fundarins verða Kristján Möller samgönguráðherra, Ragnhildur Hjaltadóttir og Karl Alvarsson frá samgönguráðuneyti og Hreinn Haraldsson vegamálastjóri.

Miðað er við að fundurinn standi í rúma klukkustund.

Fundurinn verður haldinn samkvæmt reglum um opna fundi fastanefnda Alþingis, sjá reglur.

Fundurinn verður sendur beint út á vef Alþingis og verða einnig aðgengilegar hljóð- og myndupptökur að fundi loknum. Fundurinn verður jafnframt sendur út á sjónvarpsrás Alþingis og í ríkissjónvarpinu.

Nánari upplýsingar veitir Sigrún Brynja Einarsdóttir, forstöðumaður nefndasviðs, í síma 563 0500.