Tilkynningar

Opinn fundur fjárlaganefndar um samkomulag við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og stöðu efnahagsmála 1. apríl 2009

31.3.2009

Fjárlaganefnd Alþingis heldur opinn fund kl. 9.30 miðvikudaginn 1. apríl. Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis að Austurstræti 8-10 og verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.

Á fundinum verður rætt um framvindu samkomulags íslenskra stjórnvalda við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, aðgerðir í tengslum við það og stöðu efnahagsmála.

Gestir fundarins verða fjármálaráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, Indriði H. Þorláksson, ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytis, og Nökkvi Bragason, skrifstofustjóri fjárlagaskrifstofu fjármálaráðuneytis.

Miðað er við að fundurinn standi í allt að tvo tíma.

Fundurinn verður haldinn samkvæmt reglum um opna fundi fastanefnda Alþingis, sjá reglur.

Fundurinn verður sendur beint út á vef Alþingis og verða einnig aðgengilegar hljóð- og myndupptökur að fundi loknum. Fundurinn verður einnig sendur út á sjónvarpsrás Alþingis og í ríkissjónvarpinu.

Nánari upplýsingar veitir Sigrún Brynja Einarsdóttir, forstöðumaður nefndasviðs, í síma 563 0500.