Tilkynningar

Úthlutun fræðimannsíbúðar Húss Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn 2003-2004

24.6.2003

Úthlutunarnefnd fræðimannsíbúðar samkvæmt reglum um Hús Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn hefur lokið störfum og úthlutað íbúðinni frá 1. september 2003 til 31. ágúst 2004. Í úthlutunarnefndinni eiga sæti Halldór Blöndal, forseti Alþingis, Þorsteinn Pálsson, sendiherra Íslands í Kaupmannahöfn, og dr. Jakob Yngvason prófessor. Ritari nefndarinnar er Helgi Bernódusson, aðstoðarskrifstofustjóri Alþingis.

Alls bárust nefndinni 28 umsóknir að þessu sinni.
Sjö fræðimenn fá afnot af íbúðinni, sem hér segir:

Guðmundur Magnússon, myntbandalög í orði og á borði.
Jón Þ. Þór, ævisaga dr. Valtýs Guðmundssonar.
Páll Björnsson, Jón Sigurðsson: Samband þjóðar og hetju.
Páll Hreinsson, hæfisreglur stjórnsýslulaga.
Sigrún Pálsdóttir, ævisaga Þóru Pétursdóttur.
Sr. Sigurður Pálsson, kirkja og skóli á 20. öld.
Þorleifur Hauksson, útgáfa Sverris sögu á vegum Fornritafélagsins.

Fræðimannsíbúðin í Kaupmannahöfn, tengd nafni Jóns Sigurðssonar, er skammt frá Jónshúsi, í Sankt Pauls Gade 70. Fræðimaður hefur vinnustofu í Jónshúsi.