Bein útsending frá nefndarfundi um skýrslu umboðsmanns Alþingis
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd heldur opinn fund þriðjudaginn 24. febrúar kl. 10.00–11.30 um skýrslu umboðsmanns Alþingis fyrir árið 2013. Bein útsending.
Gestir á fundinum verða Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis, Berglind Bára Sigurjónsdóttir skrifstofustjóri og Særún María Gunnarsdóttir, lögfræðingur hjá umboðsmanni Alþingis.
Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.
Bein útsending verður frá fundinum í ríkissjónvarpinu og á vef Alþingis og sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone.
Fundurinn verður haldinn samkvæmt reglum um opna fundi fastanefnda Alþingis.