Tilkynningar

Skólaþing sett

22.11.2007

Forseti Alþingis, Sturla Böðvarsson, setti í morgun Skólaþing Alþingis, sem þar með tók formlega til starfa. Skólaþingið er kennsluver Alþingis fyrir efstu bekki grunnskóla og þar fara nemendur í hlutverkaleik og fylgja í stórum dráttum reglum um starfshætti Alþingis.

Forseti Alþingis hefur sent skólastjórum allra grunnskóla landsins bréf til kynningar á starfsemi Skólaþingsins. Þá er Skólaþingið jafnframt kynnt á vefsíðu Skólaþingsins sem er http://www.skolathing.is/ Skólaþingið er til húsa í Austurstræti 8-10.