Tilkynningar

Opnir fundir um Íbúðalánasjóð 8. nóvember - bein útsending

7.11.2013

Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis mun halda opna fundi föstudaginn 8. nóvember 2013 um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um Íbúðalánasjóð o.fl. Fyrri fundurinn hefst kl. 11:00 og seinni fundurinn kl. 13:00.

Á síðu stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar um skýrsluna eru gögn sem tengjast umfjöllun nefndarinnar um málið. Bein útsending verður frá fundunum.

Gestir:
Kl. 11:00 Hallur Magnússon fyrrverandi sviðsstjóri hjá Íbúðalánasjóði.

Kl. 13:00 Sigurður Erlingsson forstjóri Íbúðalánasjóðs.


Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.

Bein útsending verður frá fundinum í ríkissjónvarpinu og á vef Alþingis og sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone og í ríkissjónvarpinu.
Fundurinn verður haldinn samkvæmt reglum um opna fundi fastanefnda Alþingis, sjá reglur.