Tilkynningar

Umsóknir um dvöl í íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn 2014-2015

16.4.2014

Íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn, skv. reglum um hús Jóns Sigurðssonar, er laus til afnota tímabilið 27. ágúst 2014 til 25. ágúst 2015.
Allar nánari upplýsingar og sérstök eyðublöð er að finna á heimasíðu Jónshúss.

Umsóknir um íbúðina skulu hafa borist skrifstofu Alþingis eigi síðar en mánudaginn 19. maí næstkomandi.