Tilkynningar

Bertel Haarder hlýtur Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta árið 2014

28.4.2014

Hátíð Jóns Sigurðssonar var haldin í Jónshúsi í Kaupmannahöfn í dag, 24. apríl, á sumardaginn fyrsta. Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, setti hátíðina og afhenti Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta.
Verðlaunin féllu að þessu sinni í hlut Bertels Haarders, fyrrverandi menntamálaráðherra Danmerkur, fyrir framlag hans til menningarsamstarfs Danmerkur og Íslands, sem og fyrir stuðning hans við varðveislu þjóðararfsins. Forusta Bertels Haarders sem menntamálaráðherra við lyktir handritamálsins og fulltingi hans við eflingu og samstarf handritastofnana í báðum löndum er ómetanlegt.

Aðalræðumaður á hátíðinni var Guðrún Nordal, forstöðumaður Árnastofnunar, og gerði hún að umfjöllunarefni handritin og hlutverk þeirra í menningarsögu Íslands.

Verðlaunin hafa áður hlotið:

2013: Erling Blöndal Bengtsson, sellóleikari.
2012: Pétur M. Jónasson, vatnalíffræðingur og prófessor emeritus.
2011: Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands.
2010: Søren Langvad byggingarverkfræðingur og forstjóri.
2009: Erik Skyum-Nielsen bókmenntafræðingur og þýðandi.
2008: Guðjón Friðriksson sagnfræðingur.

Alþingi veitir Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta í minningu starfa hans í þágu Íslands og Íslendinga. Þau hlýtur hverju sinni einstaklingur sem hefur unnið verk er tengjast hugsjónum og störfum Jóns Sigurðssonar. Þau verk geta verið á sviði fræðistarfa, viðskipta eða mennta- og menningarmála.

Nánari upplýsingar um dagskrá hátíðarinnar er að finna á vef Jónshúss.