Tilkynningar

Hátíð Jóns Sigurðssonar í Jónshúsi í Kaupmannahöfn 25. apríl 2013

23.4.2013

Hátíð Jóns Sigurðssonar verður haldin í Jónshúsi í Kaupmannahöfn á sumardaginn fyrsta, 25. apríl 2013, kl. 16.30. Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta verða afhent af því tilefni. Markmiðið með hátíðinni er að heiðra minningu Jóns Sigurðssonar og halda á loft verkum hans og hugsjónum.
Alþingi veitir Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta í minningu starfa hans í þágu Íslands og Íslendinga. Þau hlýtur hverju sinni einstaklingur sem hefur unnið verk er tengjast hugsjónum og störfum Jóns Sigurðssonar. Þau verk geta verið á sviði fræðistarfa, viðskipta eða mennta- og menningarmála.

Nánari upplýsingar um dagskrá hátíðarinnar er að finna á vef Jónshúss.