Tilkynningar

Opinn fundur um reglur um uppreist æru - bein útsending

25.8.2017

Allsherjar- og menntamálanefnd heldur opinn fund um reglur um uppreist æru miðvikudaginn 30. ágúst kl. 10.30 

Gestir fundarins:

10.30-11.30 Dómsmálaráðherra, Sigríður Á. Andersen, og Haukur Guðmundsson, ráðuneytisstjóri í dómsmálaráðuneyti.

11.30-12.00 Bergur Þór Ingólfsson.

Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.

 

Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone. 

Fundurinn verður haldinn samkvæmt reglum um opna fundi fastanefnda Alþingis.