Tilkynningar

Upptaka frá opnum fundi um varðveislu sönnunargagna í sakamálum

17.1.2018

Upptaka frá opnum fundi  um varðveislu sönnunargagna í sakamálum sem haldinn var í allsherjar- og menntamálanefnd 17. janúar. 

Gestir fundarins voru Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra, Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari, Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari, Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri og Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu.

Bein útsending var frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone. 

Fundurinn var haldinn samkvæmt reglum um opna fundi fastanefnda Alþingis.