Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending



    Um Alþingi Skrifstofa Netföng Þjónusta Valin vefföng Fjölmiðlar Efnisyfirlit  
Upplýsingaþjónusta

Upplýsingaþjónusta fyrir alþingismenn og starfsfólk þingsins starfar samkvæmt reglum forsætisnefndar. Upplýsingaþjónustan er í Þórshamri þar starfa bókasafns- og upplýsingafræðingar sem afla gagna úr innlendum og erlendum upplýsingaveitum eða bókasafni Alþingis. Sérfræðingur menntaður í hagfræði aðstoðar við upplýsingaöflun og skrifar úttektir um hagfræðileg málefni. Starfsfólk upplýsingaþjónustu sér einnig um að panta fréttir úr fjölmiðlum fyrir þingmenn. Jafnframt veitir það fræðslu og aðstoð við öflun upplýsinga á netinu og leit á vef Alþingis.

Upplýsingavakt er kl. 9-17 virka daga og til kl. 19 þegar þingfundir standa, sími 5630 630, netfang upplysing@althingi.is.

Upplýsingaþjónusta - bókasafn

Bókasafn Alþingis er í Þórshamri. Efni safnsins er skráð í bókasafnskerfið Gegni, landskerfi bókasafna. Allir sem eru tengdir við netið geta leitað í Gegni. Starfsfólk upplýsingaþjónustu Alþingis annast afgreiðslu á efni bókasafnsins og millisafnalán. Bækur eru eingöngu lánaðar þingmönnum, starfsfólki þingsins og í millisafnalánum.

Afgreiðslutími safnsins er samkvæmt samkomulagi. Frekari upplýsingar fást í síma 5630 630 eða með því að senda fyrirspurnir í tölvupósti til upplysing@althingi.is.

Leit í safnakosti bókasafna


Gagnasöfn
Uppflettiefni


Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.