Upplýsingar (á 138. þingi)
|
Skýrslur og þingsályktunartillögur
|
Þingmannanefnd um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis (starfaði á 138. löggjafarþingi, 2009-2010)
Sérfræðingar nefndarinnar: Bryndís Hlöðversdóttir, deildarforseti lagadeildar Háskólans á Bifröst, dr. Ragnhildur Helgadóttir, prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík og Jónatan Þórmundsson prófessor.
Kosning þingmannanefndar um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis
Nefnd til að fjalla um
skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um bankahrunið og móta tillögur að viðbrögðum þingsins
við niðurstöðum hennar var kosin á Alþingi 30. desember 2009.
Í henni áttu sæti
níu þingmenn og áttu allir þingflokkar fulltrúa í nefndinni.
Reglur um störf þingmannanefndarinnar
Almennar reglur
þingskapa um fastanefndir Alþingis giltu um störf þingmannanefndarinnar eftir því sem við á
en auk þess setti nefndin sér sérstakar
starfsreglur. Nefndin hafði sömu heimildir og fastanefndir Alþingis til boða gesti á sinn fund, óska eftir skriflegum
umsögnum og halda
opna nefndarfundi.
Þingmannanefndin fékk sérfræðiaðstoð frá starfsfólki skrifstofu Alþingis og gat einnig leitað til utanaðkomandi sérfræðinga.
Verkefni þingmannanefndarinnar - viðbrögð Alþingis
Skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis er ætlað að greina ástæður bankahrunsins og var skýrslan lögð störfum þingmannanefndarinnar til grundvallar.
Verkefni rannsóknarnefndarinnar voru skilgreind í 1. gr.
laga nr. 142/2008 og eru niðurstöður hennar
og upplýsingar birtar í skýrslu nefndarinnar.
Með hliðsjón af verkefnum rannsóknarnefndarinnar voru verkefni þingmannanefndarinnar lögð upp á eftirfarandi hátt:
- Almennt pólitískt uppgjör á efnahagshruninu
Þingmannanefndin mun taka afstöðu til ályktana í skýrslu
rannsóknarnefndarinnar um ástæður efnahagsáfallanna og hvaða lærdóm megi draga
af þeim.
- Breytingar á lögum og reglum
Þingmannanefndin mun fylgja eftir ábendingum
rannsóknarnefndarinnar um æskilegar breytingar á lögum og reglum er miða að
því að hindra að efnahagsleg áföll endurtaki sig. Nefndin getur lagt fram
lagafrumvörp og þingsályktunartillögur eða vísað einstökum ábendingum til
fastanefnda þingsins.
- Mat á ábyrgð
Í skýrslu rannsóknarnefndarinnar verður lagt mat á ábyrgð á hugsanlegum mistökum og vanrækslu stjórnvalda sem áttu þátt í hruninu. Gefi niðurstöður rannsóknarnefndarinnar tilefni til mun þingmannanefndin taka afstöðu til framgöngu ráðherra í aðdraganda hrunsins.
Þingmannanefndin mun einnig fjallað um eftirlit með fjármálastarfsemi, starfsemi fjölmiðla, starfsemi fjármálafyrirtækja og aðra starfsemi í viðskiptalífinu, starfshætti og siðferði.
Þingmannanefndin skilar tillögum
Þingmannanefndin gerði grein fyrir tillögum sínum í
skýrslu sem hún lagði fram fyrir lok 138. löggjafarþings.