Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður

Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending



Í nærmynd
Gunnar Bragi Sveinsson
4. þm. NV, F, GBS
Gunnar Bragi Sveinsson

  Um AlþingiSkrifstofaNetföngÞjónustaValin vefföngFjölmiðlarEfnisyfirlit English    Dansk

Efnahags- og skattanefnd

Upplýsingar úr gagnagrunni (á yfirstandandi þingi)

Opnir nefndafundir


Nefndarritari: Eiríkur Áki Eggertsson lögfræðingur,

Fastur fundartími nefndarinnar er á þriðjudögum kl. 10.15-12.00.

Málaflokkar

Til efnahags- og skattanefndar er m.a. vísað málum er varða skatta, tolla og gjöld, eignir ríkisins, lífeyrissjóði, gjaldeyri og gjaldmiðil. Á málefnasviði nefndarinnar eru t.d. lög um tekjuskatt, lög um virðisaukaskatt, tollalög, lög um opinber innkaup, lög um bókhald og lög um ársreikninga.

Kosning

Á fyrsta fundi hvers kjörtímabils eru kosnir 9 þingmenn í efnahags- og skattanefnd og gildir sú kosning til loka kjörtímabilsins. Boða skal til fyrsta fundar nefndarinnar innan viku frá kosningu hennar og kýs nefndin þá formann og varaformann.

Umsagnir um þingmál

Svör við umsagnarbeiðnum og athugasemdir um þingmál(sjá umsagnir um þingmál) má senda í tölvupósti en frumrit umsagnar þarf jafnframt að berast til skjalaskráningar á nefndasviði skrifstofu Alþingis, Austurstræti 8-10, 150 Reykjavík. Netfangið er nefndasvid@althingi.is.

Öllum er frjálst að senda nefnd skriflega umsögn um þingmál að eigin frumkvæði og hefur slík umsögn sömu stöðu og þær sem berast samkvæmt beiðni nefndar. Meginreglan er sú að aðgangur að erindum til nefnda er öllum heimill eftir að nefnd hefur átt þess kost að fjalla um þau og er þau birt á vef.

Sjá leiðbeiningar um ritun umsagna.



Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.