Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður

Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending



  Um AlþingiSkrifstofaNetföngÞjónustaValin vefföngFjölmiðlarEfnisyfirlit English    Dansk

Efnahags- og viðskiptanefnd

Upplýsingar úr gagnagrunni (á yfirstandandi þingi)

Opnir nefndafundir


Nefndarritari: Eiríkur Áki Eggertsson lögfræðingur,

Fastur fundartími nefndarinnar er á mánudögum kl. 9.30-11.30 og miðvikudögum kl. 9.00-12.00.

Málaflokkar

Nefndin fjallar um efnahagsmál almennt, viðskiptamál, þ.m.t. bankamál og fjármálastarfsemi, svo og skatta- og tollamál.

Efnahags- og viðskiptanefnd starfaði áður frá 114. til 134. þings en með breytingum sem gerðar voru á þingsköpum í tengslum við breytingar á stjórnarráðinu árið 2007 var málefnum nefndarinnar vísað annars vegar til efnahags- og skattanefndar og hins vegar til viðskiptanefndar.

Kosning

Kosið var í nefndina við upphaf 140. þings vegna breytinga á lögum um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, með síðari breytingum, sem samþykktar voru á Alþingi 11. júní 2011. Að öllu jöfnu eru 9 þingmenn kosnir á fyrsta fundi hvers kjörtímabils og gildir sú kosning til loka kjörtímabilsins.

Umsagnir um þingmál

Svör við umsagnarbeiðnum og athugasemdir um þingmál (sjá umsagnir um þingmál) má senda í tölvupósti en frumrit umsagnar þarf jafnframt að berast til skjalaskráningar á nefndasviði skrifstofu Alþingis, Austurstræti 8-10, 150 Reykjavík. Netfangið er nefndasvid@althingi.is.

Öllum er frjálst að senda nefnd skriflega umsögn um þingmál að eigin frumkvæði og hefur slík umsögn sömu stöðu og þær sem berast samkvæmt beiðni nefndar. Meginreglan er sú að aðgangur að erindum til nefnda er öllum heimill eftir að nefnd hefur átt þess kost að fjalla um þau og er þau birt á vef.

Sjá leiðbeiningar um ritun umsagna.

Mál í umsagnarferli

Frestur til 23.05.2012

Frestur til 21.06.2012

Leiðbeiningar um umsagnir um þingmál

Nýleg skjöl

Útbýtt 15.05.2012

Útbýtt 11.05.2012



Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.