Upplýsingar úr gagnagrunni (á yfirstandandi þingi)
|
Opnir nefndafundir
|
Nefndarritarar:
Benedikt Sveinbj. Benediktsson lögfræðingur,
Gautur Sturluson lögfræðingur,
Fastur fundartími nefndarinnar er á mánudögum kl. 9.30-11.30 og miðvikudögum kl. 9.00-12.00.
Málaflokkar
Nefndin fjallar um efnahagsmál almennt, viðskiptamál, þ.m.t. bankamál, fjármálastarfsemi og lífeyrismál, svo og skatta- og tollamál.
Kosning
Kosið er í nefndir á fyrsta fundi Alþingis að afloknum alþingiskosningum. Að öllu jöfnu eru 9 þingmenn kosnir á fyrsta fundi hvers kjörtímabils og gildir sú kosning til loka kjörtímabilsins.
Umsagnir um þingmál
Vakin er athygli á því að frá og með 142. löggjafarþingi verður nefndastarf fastanefnda Alþingis rafrænt. Því er óskað eftir að svör við umsagnarbeiðnum og athugasemdir um þingmál (sjá
umsagnir um þingmál) verði send á rafrænu formi á netfangið
nefndasvid@althingi.is.
Öllum er frjálst að senda nefnd skriflega umsögn um þingmál að eigin frumkvæði og hefur slík umsögn sömu stöðu og þær sem berast samkvæmt beiðni nefndar. Meginreglan er sú að aðgangur að erindum til nefnda er öllum heimill eftir að nefnd hefur átt þess kost að fjalla um þau og er þau birt á vef.
Sjá
leiðbeiningar um ritun umsagna.