Til félagsmálanefndar var m.a. vísað málum er varða stjórn sveitarfélaga, húsnæðis- og atvinnumál, vernd
barna og ungmenna og málefni fatlaðra. Á málefnasviði nefndarinnar voru t.d. sveitarstjórnarlög, lög um kosningar
til sveitarstjórna, lög um fjöleignarhús, lög um húsaleigubætur, barnaverndarlög og lög um málefni fatlaðra.