Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður

Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending



Í nærmynd
Lilja Rafney Magnúsdóttir
8. þm. NV, Vg, LRM
Lilja Rafney Magnúsdóttir

  Um AlþingiSkrifstofaNetföngÞjónustaValin vefföngFjölmiðlarEfnisyfirlit English    Dansk

Félag fyrrverandi alþingismanna


Stjórn félagsins
Formaður: Guðrún Agnarsdóttirsími: 896 8587,
Varaformaður: Salome Þorkelsdóttirsími: 662 3664,
Ritari: Árni Gunnarssonsími: 861 7788,
Gjaldkeri: Ingibjörg Pálmadóttir sími: 864 0330,
Meðstjórnandi: Skúli Alexandersson sími: 892 4143,

Starfsemi félagsins
Í félaginu eru um 150 félagsmenn. Einnig eru eftirlifandi makar fyrrverandi alþingismanna ávallt velkomnir á árshátíðir og í ferðalög sem félagið stendur fyrir, þótt þeir séu ekki formlegir félagar, og hafa fjölmennt á þær samkomur.

Aðalfund ber að halda í janúar til mars ár hvert. Aðalfundur kýs fimm menn í stjórn og ákveður árgjald hverju sinni.

Árshátíð félagsins er venjulega haldin um miðjan mars og er ávallt fjölsótt. Venja er að starfandi alþingismaður flytji aðalræðu kvöldsins.

Félagið efnir árlega til hópferðar, oftast um hásumarið. Síðastliðið sumar fagnaði félagið 20 ára afmæli sínu með dagsferð um Bláskógabyggð og var kvöldverður snæddur í Skálholti í boði forseta Alþingis, Sólveigar Pétursdóttur.

Félagið hefur haldið aðalfundi sína í húsakynnum Alþingis í Reykjavík. Skrifstofa þingsins hefur liðsinnt félaginu frá stofnun þess og veitt því margvíslegan stuðning og þjónustu. Heimili félagsins er hjá Alþingi og hefur Hafdís Þórhallsdóttir, ritari, verið tengiliður skrifstofunnar við stjórn félagsins undanfarin ár.

Félagið hefur talsverð samskipti við systurfélög sín á Norðurlöndunum og hefur átt fulltrúa á aðalfundum félaganna í Noregi, Danmörku og Svíþjóð. Systurfélögin eru: Foreningen av tidligare stortingsrepresentanter (Noregur), Riksdagens Veteranforening (Svíþjóð), Forhenværende Folketingsmedlemmers Forening (Danmörk), Veteranföreningen vid Finlands riksdag.

Saga félagsins
Félag fyrrverandi alþingismanna var formlega stofnað árið 1986, en að félagsstofnun var nokkur aðdragandi. Í maímánuði 1985 hittust nokkrir fyrrverandi alþingismenn á Hótel Borg og ræddu um það yfir kaffibolla að gaman væri að koma saman stöku sinnum til þess að rifja upp gömul kynni og ræða landsins gagn og nauðsynjar. Niðurstaðan varð sú að athuga um félagsstofnun - og aftur var komið saman á Borginni.

Fimmtudaginn 29. ágúst 1985 var farin ferð til Þingvalla og voru þátttakendur 27 fyrrverandi alþingismenn. Lagt var upp frá Umferðarmiðstöðinni og komið til Þingvalla kl. 19. Þar var snæddur kvöldverður. Meðan á borðhaldi stóð voru fluttar ræður og skemmtu menn sér hið besta. Utan Valhallar var tekin mynd af hópnum. Á þessum Þingvallafundi var ákveðið að stefnt skyldi að félagsstofnun.

Stofnfundurinn var svo haldinn á Hótel Borg þann 7. mars 1986. Á honum voru 29 fyrrverandi alþingismenn sem samþykktu lög fyrir félagið. Fáum dögum eftir stofnfund var, skv. nýsamþykktum lögum, öllum þeim sem rétt höfðu til aðildar að félaginu en voru ekki á fundinum skrifað bréf um félagsstofnunina og þeim send lögin. Jafnframt sagði í bréfi til þeirra á þessa leið:
"Með bréfi þessu er öllum fyrrverandi kjörnum alþingismönnum, sem orðnir eru sextugir, boðið að gerast félagsmenn. Eru þeir, sem áhuga hafa, vinsamlegast beðnir að tilkynna það formanni eða ritara bréflega eða símleiðis. Þeir sem gerast félagsmenn fyrir 1. maí nk. teljast stofnendur félagsins."
Þá bættust við 15 stofnfélagar þannig að samtals voru þeir 44. Fyrsti formaður var Jónas G. Rafnar.

Fyrsti formaður hins danska félags fyrrverandi þjóðþingmanna (Forhenværende Folketingsmedlemmers Forening), Erik Finnemann Bruun, var helsti hvatamaður stofnunar íslenska félagsins rétt eins og sambærilegra félaga annars staðar á Norðurlöndunum.
Helga Guðrún Jónasdóttir flytur erindi á hátíðarsamkomu
Helga Guðrún Jónasdóttir flutti erindi um stjórnmálaþátttöku kvenna á hátíðarsamkomu sem haldin var í Alþingishúsinu 8. júlí 2012.


Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.