Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður

Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending



Í nærmynd
Bjarkey Gunnarsdóttir
9. þm. NA, Vg, BjG
Bjarkey Gunnarsdóttir

  Um AlþingiSkrifstofaNetföngÞjónustaValin vefföngFjölmiðlarEfnisyfirlit English    Dansk

Fjárlaganefnd

Upplýsingar úr gagnagrunni (á yfirstandandi þingi)

Opnir nefndafundir


Nefndarritarar:
Jón Magnússon viðskiptafræðingur,
Ólafur Elfar Sigurðsson viðskiptafræðingur,

Fastur fundartími nefndarinnar er á mánudögum kl. 9.30-11.30, miðvikudögum kl. 9.00-12.00 og föstudögum kl. 8.30-10.30.

Kosning

Kosið var í nefndina við upphaf 140. þings vegna breytinga á lögum um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, með síðari breytingum, sem samþykktar voru á Alþingi 11. júní 2011. Að öllu jöfnu eru 9 þingmenn kosnir á fyrsta fundi hvers kjörtímabils og gildir sú kosning til loka kjörtímabilsins.

Málaflokkar

Nefndin fjallar um fjármál ríkisins, fjárveitingar, eignir ríkisins, lánsheimildir og ríkisábyrgðir og lífeyrisskuldbindingar ríkissjóðs. Enn fremur skal nefndin annast eftirlit með framkvæmd fjárlaga.

Hlutverk og helstu verkefni

Mikilvægasta verkefni nefndarinnar er að fylgja eftir og gefa álit á frumvarpi til fjárlaga og til fjáraukalaga á hverju ári. Eftir 1. umræðu á Alþingi er fjárlagafrumvarpi vísað til fjárlaganefndar. Nefndin hefur tekið vinnubrögð til endurskoðunar og breytt áherslum á undanförnum árum. Sem dæmi um það má nefna að nú hefur Alþingi hætt úthlutunum á styrkjum til ýmissa verkefna félagasamtaka og einstaklinga, þess í stað hefur verkefnið flust til ráðuneyta sem bera ábyrgð á viðkomandi málaflokkum. Þá mun nefndin leggja fram frumvörp sem miða að því að styrkja fjárstjórnarvald Alþingis. Einnig er fyrirhugað að birta verklagsreglur nefndarinnar sem taka til þriggja þátta:
  • Umfjöllunar nefndarinnar um frumvörp til fjáraukalaga og fjárlaga.

  • Verklags vegna meiri háttar ákvarðana í ríkisfjármálum, s.s. vegna fjárfestinga og skuldbindinga umfram 500 m.kr.

  • Áherslna og verklags við framkvæmd fjárlaga.
Fjárlaganefndin hefur lagt sérstaka áherslu á eftirlitshlutverk sitt með framkvæmdarvaldinu á sl. árum. Kemur það m.a. fram í ítarlegum nefndarálitum og eftirfylgni í tengslum við endurskoðunarskýrslu Ríkisendurskoðunar á ríkisreikningi hvers árs. Einnig hefur nefndin aukið eftirfylgni með skýrslum og greiningum á framkvæmd fjárlaga innan ársins.

Umsagnir um þingmál

Umsagnir og athugasemdir um þingmál má senda í tölvupósti á netfangið nefndasvid@althingi.is. Öllum er frjálst að senda nefnd skriflega umsögn um þingmál að eigin frumkvæði og hefur slík umsögn sömu stöðu og þær sem berast samkvæmt beiðni nefndar. Sjá nánar umsagnir um þingmál.



Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.