Þátttaka í allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna
Alþingi
á fulltrúa í sendinefnd Íslands á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna sem fram
fer á tímabilinu september til desember ár hvert. Alls sækja sex alþingismenn
allsherjarþingið árlega og eru þeir tilnefndir af þingflokkum. Fulltrúar
Alþingis skiptast í tvo hópa sem sitja þingið í tvær vikur hvor. Þingmenn fá með
þátttöku sinni tækifæri til að fræðast um starfsemi Sameinuðu þjóðanna. Þeir
fylgjast með störfum allsherjarþingsins og sækja fundi í einstökum nefndum.
Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna er einn helsti vettvangur ríkja heims til að
koma skoðunum sínum á framfæri og þar hefur hvert ríki eitt atkvæði. Þótt
allsherjarþingið hafi ekki bein völd og geti ekki framfylgt ályktunum sínum er
það mikilvægur samráðsvettvangur. Það hefur siðferðilegt vægi í alþjóðamálum og
hefur unnið að bindandi alþjóðalöggjöf fyrir aðildarríki sín. Ísland hefur átt
aðild að Sameinuðu þjóðunum frá árinu 1946. Nánari upplýsingar um allsherjarþing
Sameinuðu þjóðanna eru á heimasíðu samtakanna á slóðinni
http://www.un.org/.
Annað
Margvísleg boð berast árlega um þátttöku í
ráðstefnum og fundum sem ekki falla undir verksvið alþjóðanefnda og ákveður
forseti þá hverju sinni hvort og hvernig þátttöku Alþingis skuli háttað. Sem
dæmi má nefna hina árlegu Eystrasaltsráðstefnu og ráðstefnur á vegum Sameinuðu
þjóðanna.
Ráðstefnur
Vestnorræn ráðstefna
um jafnréttismál í boði forseta Alþingis