Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður

Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending



  Um AlþingiSkrifstofaNetföngÞjónustaValin vefföngFjölmiðlarEfnisyfirlit English    Dansk

Forsætisnefnd




Hlutverk forsætisnefndar

Þegar Alþingi kemur saman við þingsetningu á fyrsta fundi hvers kjörtímabils skal kosinn forseti og sex varaforsetar og skipa þeir forsætisnefnd. Varaþingmenn taka ekki sæti í forsætisnefnd í forföllum.

Forsætisnefnd skipuleggur þinghaldið, hefur umsjón með alþjóðasamstarfi, fjallar um fjárhagsáætlanir þingsins og setur almennar reglur um rekstur þingsins og stjórnsýslu. Auk þess fjallar nefndin um þau mál sem forseti leggur fyrir hana eða varaforsetar óska að ræða.

Fyrir afnám deildaskiptingar Alþingis 1991 stjórnuðu þrír forsetar störfum Alþingis, þ.e. forseti sameinað þings og forsetar efri og neðri deildar. Einnig voru kosnir tveir varaforsetar fyrir hvern forseta, þ.e. sex varaforsetar alls.

Forsetar fóru í sameiningu með framkvæmdastjórn Alþingis og höfðu umsjón með eignum þess og fjárráðum.

Forsætisnefnd fer nú með þau verkefni sem forsetum Alþingis hafa verið falin í öðrum lögum.




Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.