16.05.2012 Sérstök umræða 18. maí
Sérstök umræða fer fram föstudaginn 18. maí kl. 15:30: Staðan á áætlun stjórnvalda um afnám gjaldeyrishafta, málshefjandi er Illugi Gunnarsson og til andsvara verður efnahags- og viðskiptaráðherra, Steingrímur J. Sigfússon.
14.05.2012 Viðvera ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma 18. maí
Viðvera ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma föstudaginn 18. maí kl. 10:30: Forsætisráðherra, fjármálaráðherra, umhverfisráðherra og velferðarráðherra.
10.05.2012 Breyting á starfsáætlun Alþingis
Á fundi forsætisnefndar 10. maí var ákveðið að færa nefndadaginn sem samkvæmt starfsáætlun átti að vera þriðjudaginn 15. maí yfir á miðvikudaginn 23. maí. Meira
09.05.2012 Tvær sérstakar umræður fimmtudaginn 10. maí - kl. 11 og 13.30
Fimmtudaginn 10. maí kl. 11 árdegis fara fram sérstakar umræður um málefni Íbúðalánasjóðs. Málshefjandi er Ásbjörn Óttarsson og til andsvara verður velferðarráðherra, Guðbjartur Hannesson. Fimmtudaginn 10. maí kl. 1.30 miðdegis fara fram sérstakar umræður um umgjörð ríkisfjármála. Málshefjandi er Sigríður Ingibjörg Ingadóttir og til andsvara verður fjármálaráðherra, Oddný Harðardóttir.
03.05.2012 Fundur þingmannanefndar EES á Akureyri 3.-4. maí
Þingmannanefnd EES kemur saman til 38. fundar síns á Akureyri 3.-4. maí 2012. Helstu mál fundarins eru framkvæmd EES-samningsins, úttektir einstakra ríkja og framkvæmdastjórnar ESB á EES-samningnum, og Hvítbók um samgöngumál í Evrópu. Af hálfu Íslandsdeildar þingmannanefnda EFTA og EES sækja fundinn þau Árni Þór Sigurðsson formaður, Skúli Helgason, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Sigmundur Ernir Rúnarsson og Þorgerður K. Gunnarsdóttir.
02.05.2012 Sérstakar umræður fimmtudaginn 3. maí kl. 11
Fimmtudaginn 3. maí kl. 11 árdegis fara fram sérstakar umræður um kreppu krónunnar. Málshefjandi er Lilja Mósesdóttir og til andsvara verður efnahags- og viðskiptaráðherra, Steingrímur J. Sigfússon.
24.04.2012 Sérstakar umræður miðvikudaginn 25. apríl kl. 15.30
Miðvikudaginn 25. apríl kl. 15.30 fara fram sérstakar umræður um málefni Farice. Málshefjandi er Vigdís Hauksdóttir og til andsvara verður fjármálaráðherra, Oddný Harðardóttir.
23.04.2012 Varamaður tekur sæti á Alþingi
Tilkynning frá forseta Alþingis: Þann 23. apríl tók Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson sæti sem varamaður Gunnars Braga Sveinssonar.
Frá 1. janúar 2010 til 1. janúar 2012 voru allir handhafar forsetavalds konur. Ingibjörg Benediktsdóttir, forseti Hæstaréttar, Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis.
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.