18.03.2010 Sendinefnd á vegum utanríkismálanefndar Alþingis í Lundúnum 22.-23. mars
Sendinefnd á vegum utanríkismálanefndar Alþingis var í Lundúnum 22.-23. mars og átti viðræður við breska þingmenn úr utanríkismálanefnd neðri deildar breska þingsins og einnig með formanni og fulltrúum úr fjárlaganefnd. Jafnframt funduðu íslensku þingmennirnir með vináttuhópi Íslands og Bretlands sem starfar í breska þinginu.
Tilgangur fundanna var að ræða samskipti ríkjanna, stöðu Icesave-málsins og tengd málefni.
Af hálfu utanríkismálanefndar sóttu eftirtaldir þingmenn fundina: Árni Þór Sigurðsson, formaður (Vg.) Valgerður Bjarnadóttir, varaformaður (Samf.) Birgitta Jónsdóttir (Hreyf.) Bjarni Benediktsson (Sjálfstfl.) Gunnar Bragi Sveinsson (Framsfl.)
Alþingishúsið var opið almenningi 17. júní 2011 í tilefni af 100 ára afmæli Háskóla Íslands einnig var 200 ára afmælis Jóns Sigurðssonar forseta minnst.
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.