Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður

Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending



Í nærmynd
Páll Jóhann Pálsson
5. þm. SU, F, PJP
Páll Jóhann Pálsson

  Um AlþingiSkrifstofaNetföngÞjónustaValin vefföngFjölmiðlarEfnisyfirlit English    Dansk
12.04.2010
Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis afhent

Rannsóknarnefnd Alþingis um aðdraganda og orsök falls íslensku bankanna árið 2008 afhenti forseta Alþingis, Ástu R. Jóhannesdóttur, skýrslu sína í morgun í efrideildarsalnum í Alþingishúsinu. Varaforsetar þingsins og formenn þingflokka voru við afhendinguna. Í kjölfarið opnaði forseti Alþingis aðgang að skýrslu rannsóknarnefndarinnar á vef Alþingis.

Vefútgáfu skýrslunnar (http://rna.althingi.is) er ætlað að vera aðalútgáfa skýrslunnar enda birtist þar efni sem ekki er í hinni prentuðu útgáfu, m.a. ensk þýðing á hluta skýrslunnar (http://sic.althingi.is), tölfræðilegt efni og bréfaskipti nefndarinnar og 12 einstaklinga sem veittur var andmælaréttur um atriði sem fram koma í skýrslunni. Prentaða útgáfan, sem er í allt um 2000 blaðsíður í níu bindum, verður til sölu í bókaverslunum.



Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.