19.04.2010 Starfsfólk Borgarleikhússins heimsækir Alþingi að loknum lestri skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis
Forseti Alþingis, Ásta R. Jóhannesdóttir, hefur boðið leikurum, sem lásu upp skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis í Borgarleikhúsinu, og aðstoðarfólki þeirra, að koma í heimsókn í Alþingishúsið mánudaginn 19. apríl 2010 kl. 12.30. Leikararnir hafa lokið lestri á skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis í leikhúsinu eftir 146 klukkustunda samfelldan lestur. Fulltrúum fjölmiðla er boðið að vera við upphaf móttökunnar.
Föstudaginn 13. apríl 2012 afhjúpaði forseti Alþingis, Ásta R. Jóhannesdóttir, málverk af Sólveigu Pétursdóttur, fyrrverandi forseta Alþingis, í Alþingishúsinu. Sólveig Pétursdóttir, Ásta R. Jóhannesdóttir og listamaðurinn, Stephen Lárus Stephen við málverkið af Sólveigu í efrideildarsal.
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.