Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður

Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending



Í nærmynd
Lilja Rafney Magnúsdóttir
8. þm. NV, Vg, LRM
Lilja Rafney Magnúsdóttir

  Um AlþingiSkrifstofaNetföngÞjónustaValin vefföngFjölmiðlarEfnisyfirlit English    Dansk
17.05.2010
Fundur samstarfsnefndar Alþingis og þjóðkirkjunnar

Samstarfsnefnd Alþingis og þjóðkirkjunnar sem starfar samkvæmt lögum nr. 12/1982 hélt fund í Alþingishúsinu mánudaginn 17. maí. Fundurinn hófst kl. 10.30 og stóð fram undir hádegi. Á fundinum var meðal annars rætt um frumvarp til þjóðkirkjulaga sem samþykkt var á kirkjuþingi 2008. Önnur mál á dagskrá fundarins voru fyrirhuguð breyting á hjúskaparlögum, samningar ríkis og kirkju sem hafa verið lögfestir, fjármál þjóðkirkjunnar og önnur mál.

Samstarfsnefndina skipa af hálfu Alþingis forseti þingsins og fulltrúar allra þingflokka en af hálfu þjóðkirkjunnar kirkjuráð.

Fundinn sátu Þorsteinn Magnússon aðstoðarskrifstofustjóri, Sigurður Ingi Jóhannsson (F), Ragnheiður E. Árnadóttir(S), Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis, Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf), Árni Þór Sigurðsson (Vg), Birgitta Jónsdóttir (Hr), Halldór Gunnarsson, sóknarprestur í Holtsprestakalli, Kristján Björnsson, sóknarprestur í Vestmannaeyjaprestakalli, Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands og forseti kirkjuráðs, Jóhann E. Björnsson, fyrrverandi forstjóri, Guðmundur Þór Guðmundsson lögfræðingur og Þorvaldur Karl Helgason biskupsritari.


Samstarfsnefnd Alþingis og þjóðkirkjunnar
Samstarfsnefnd Alþingis og þjóðkirkjunnar hélt fund í Alþingishúsinu þann 17. maí 2010. Fundinn sátu, talið frá vinstri: Þorsteinn Magnússon aðstoðarskrifstofustjóri, Sigurður Ingi Jóhannsson (F), Ragnheiður E. Árnadóttir (S), Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis, Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf), Árni Þór Sigurðsson (Vg), Birgitta Jónsdóttir (Hr), Halldór Gunnarsson, sóknarprestur í Holtsprestakalli, Sigríður M. Jóhannsdóttir forstöðumaður, Kristján Björnsson, sóknarprestur í Vestmannaeyjaprestakalli, Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands og forseti kirkjuráðs, Jóhann E. Björnsson, fyrrverandi forstjóri, Guðmundur Þór Guðmundsson lögfræðingur og Þorvaldur Karl Helgason biskupsritari.


Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.