25.05.2010 Þingforsetar Norðurlanda og Eystrasaltsríkja funda með forseta fulltrúadeildar Bandaríkjaþings 26.-27. maí 2010
Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, fer á morgun til Washington ásamt þingforsetum Norðurlanda og Eystrasaltsríkja til fundar við Nancy Pelosi, forseta fulltrúadeildar Bandaríkjanna.
Áformað er að þingforsetarnir hitti Joe Biden, varaforseta Bandaríkjanna og forseta öldungadeildarinnar, Howard Berman, formann utanríkismálanefndar fulltrúadeildarinnar, og aðra fulltrúa nefndarinnar. Þá munu þingforsetarnir taka þátt í pallborðsumræðum hjá stofnuninni Centre for Strategic and International Studies í Washington.
Fundur þessi er haldinn í framhaldi af fyrri fundum þingforsetanna með forseta fulltrúadeildarinnar, með það að markmiði að efla tengsl við Bandaríkjaþing og ræða sameiginleg málefni.
Skólaþing er kennsluver Alþingis um löggjafarstarfið fyrir nemendur í 8.-10. bekk grunnskóla. Hægt er að bóka heimsókn í síma 563 0500 eða senda tölvupóst á netfangið skolathing@skolathing.is. Upplýsingar um Skólaþing er að finna á vefsíðunni skolathing.is.
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.