27.05.2010 Fundur þingforseta Norðurlanda og Eystrasaltsríkja með forseta fulltrúadeildar Bandaríkjaþings
Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, átti í dag fund í Washington með Nancy Pelosi, forseta fulltrúadeildar Bandaríkjanna, ásamt þingforsetum hinna Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna. Jafnframt funduðu þingforsetarnir með Howard Berman, formanni utanríkismálanefndar fulltrúadeildarinnar.
Á fundinum með Pelosi var gerð grein fyrir hinu nána samstarfi norrænu og baltnesku þjóðþinganna og lýst áhuga á nánara samstarfi þeirra við Bandaríkjaþing. Þá voru varnar- og öryggismál til umræðu, m.a. samskipti Atlantshafsbandalagsins við Rússa. Einnig voru málefni norðurskautsins rædd og lögð áhersla á sjálfbæra nýtingu auðlinda á svæðinu og mikilvægi umhverfisverndar í hinu viðkvæma lífríki norðursins.
Fundur þessi er haldinn í framhaldi af fyrri fundum þingforsetanna með forseta fulltrúadeildarinnar, með það að markmiði að efla tengsl við Bandaríkjaþing og ræða sameiginleg málefni.
Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, ásamt þingforsetum Norðurlanda og Eystrasaltsríkja í Washington 27. maí 2010.
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.