Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður

Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending



Í nærmynd
Jón Þór Ólafsson
10. þm. RS, P, JÞÓ
Jón Þór Ólafsson

  Um AlþingiSkrifstofaNetföngÞjónustaValin vefföngFjölmiðlarEfnisyfirlit English    Dansk
03.06.2010
Bókun utanríkismálanefndar 1. júní 2010

Meiri hluti utanríkismálanefndar fordæmir harðlega árás ísraelska hersins á tyrkneskt skip í skipalest á alþjóðlegri siglingaleið með hjálpargögn til Gazasvæðisins. Árásin er brot á alþjóðalögum. Það stríðir gegn réttlætiskennd manna, að hindra með ofbeldi að hjálpargögn berist fólki í neyð. Meiri hlutinn leggur áherslu á að mannréttindasáttmálar, samþykktir Sameinuðu þjóðanna og alþjóðalög verði virt í hvívetna í hertekinni Palestínu, á Gaza og Vesturbakkanum, að meðtalinni Austur-Jerúsalem.

Meiri hlutinn ályktar að fela utanríkisráðherra, í samráði við utanríkismálanefnd, að skipuleggja ferð til Gaza svæðisins og að Ísland standi að því að senda hjálpargögn til að aðstoða heimamenn og sýna þannig andstöðu við herkvína sem Ísraelsmenn hafa sett á Gaza í trássi við alþjóðalög. Það er ólíðandi að í meira en hálfa öld hafi ályktanir Sameinuðu þjóðanna um mannréttindi og sjálfsákvörðunarrétt palestínsku þjóðarinnar verið virtar að vettugi. Slit á stjórnmálasambandi við Ísrael kemur alvarlega til álita og er utanríkisráðherra falið að meta, í samvinnu við aðrar þjóðir, að úrræðum verði beitt sem talin eru áhrifaríkust til að knýja á um breytingar í samræmi við alþjóðalög, svo sem alþjóðlega samstöðu um viðskiptaþvinganir eða slit á stjórnmálasambandi við Ísrael, beri önnur úrræði ekki ávöxt.



Alþingishúsið og Skálinn
Vesturveggur Alþingisgarðsins, sem snýr að Skálanum, hefur verið opnaður með léttu grindverki í stað hlaðins veggjar. Súlnaröð hlaðna veggjarins við Templarasund er haldið í nýjum vesturvegg sem endurspeglast áfram í súlum Skálans.


Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.