Mánudaginn 7. júní verður haldin vestnorræn ráðstefna um jafnréttismál í boði forseta Alþingis undir yfirskriftinni: Staða og völd kvenna í stjórnmálum og atvinnulífi á Vestur-Norðurlöndum.
Ráðstefnan verður haldin í Þjóðmenningarhúsinu frá kl. 09.30-16.30. Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur ókeypis.
Á ráðstefnunni munu fyrirlesarar frá Færeyjum, Grænlandi og Íslandi fjalla um stöðu vestnorrænna kvenna í stjórnmálum og atvinnulífi. Gerð verður grein fyrir sértækum leiðum til að jafna völd karla og kvenna í stjórnmálum og atvinnulífi, auk þess sem fjallað verður um kynjaða hagstjórn og jafnréttisuppeldi.
Að loknum erindum verða pallborðsumræður þar sem konur sem eiga sæti á þjóðþingum Vestur-Norðurlanda taka þátt ásamt fleirum.
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.