07.06.2010 Vestnorræn ráðstefna um jafnréttismál 7. júní 2010
Forseti Alþingis, Ásta R. Jóhannesdóttir, flutti í morgun opnunarávarp á vestnorrænu ráðstefnunni Staða og völd kvenna í stjórnmálum og atvinnulífi á Vestur-Norðurlöndum. Hún fjallaði um stöðu íslenskra kvenna í stjórnmálum og lagði áherslu á mikilvægi þess að standa vörð um þann árangur sem hefur náðst. Forseti Alþingis minnti í þessu samhengi á lög sem nýlega voru samþykkt á Alþingi en þeim er ætlað að tryggja jafnari hlutföll kvenna og karla í áhrifastöðum í hlutafélögum og einkahlutafélögum.
Ráðstefnan er haldin í Þjóðmenningarhúsinu og stendur til kl. 16.30. Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur ókeypis.
Á ráðstefnunni fjalla fyrirlesarar frá Færeyjum, Grænlandi og Íslandi um stöðu vestnorrænna kvenna í stjórnmálum og atvinnulífi. Gerð verður grein fyrir sértækum leiðum til að jafna völd karla og kvenna í stjórnmálum og atvinnulífi, auk þess sem fjallað verður um kynjaða hagstjórn og jafnréttisuppeldi.
Að loknum erindum verða pallborðsumræður þar sem konur sem eiga sæti á þjóðþingum Vestur-Norðurlanda taka þátt ásamt fleirum.
Forseti Alþingis, Ásta R. Jóhannesdóttir, flutti opnunarávarp 7. júní 2010 á vestnorrænu ráðstefnunni, Staða og völd kvenna í stjórnmálum og atvinnulífi á Vestur-Norðurlöndum.
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.