21.06.2010 Fundur Evrópuráðsþingsins í Strassborg 21.-25. júní
Þriðji fundur Evrópuráðsþingsins á árinu verður haldinn í Strassborg dagana 21.-25. júní. Fyrir hönd Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins sækja fundinn Lilja Mósesdóttir, formaður, Magnús Orri Schram og Eygló Harðardóttir.
Það sem ber hæst á fundinum er umræða um stöðu lýðræðis í Evrópu, m.a. í ljósi alþjóðlegu fjármálakreppunnar. Frekari upplýsingar um fund Evrópuráðsþingsins er að finna á heimasíðu þess.
Úr í forsal á 1. hæð Alþingishússins. Endurbætur sem gerðar voru á Alþingishúsinu á árunum 2003-2005 miðuðu að því að færa húsið að innan sem næst upprunalegu horfi.
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.